Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 03. desember 2017 13:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Markvörðurinn skoraði í uppbótartíma
Gattuso er væntanlega ekki sáttur.
Gattuso er væntanlega ekki sáttur.
Mynd: Getty Images
Markvörðurinn Alberto Brignoli stal senunni þegar Benevento krækti í sitt fyrsta stig í Seríu A í dag.

Benevento fékk heimsókn frá stórliði AC Milan og var 2-1 þegar ein mínúta var eftir af fimm mínútna uppbótartíma.

AC Milan virtist vera að sigla sigrinum heim og fara með þrjú punkta til Mílanó, en þá tók markvörðurinn Brignoli málin í sínar hendur. Hann tók bara upp á því að skora!

Aukaspyrnu var fleytt inn á teiginn og þar var Brignoli ákveðnastur eins og sjá má hér.

Sjá einnig:
Ítalía: Markvörðurinn krækti í stig fyrir Benevento gegn Milan
Athugasemdir
banner
banner
banner