Heimild: Moss FK
Hinn 22 ára gamli Tom Even Skogsrud er genginn til liðs við Moss FK í norsku C-deildinni eftir að hafa leikið með ÍBV síðasta sumar.
Skogsrud lék fimmtán leiki í deild og þrjá í bikar fyrir Eyjamenn en áður hafði hann verið í unglingaliðum Manchester City og Rangers.
Skogsrud lék fimmtán leiki í deild og þrjá í bikar fyrir Eyjamenn en áður hafði hann verið í unglingaliðum Manchester City og Rangers.
Skogsrud er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Moss en hann hefur áður leikið fyrir Sandefjord og Kongsvinger í norska boltanum.
„Tom er leikmaður sem við tókum fyrst eftir fyrir nokkrum árum," sagði Fredrik Scheinert, yfirmaður íþróttamála hjá Moss, við mossfk.no.
„Hann getur bæði spilað á miðju og í vörn og er spennandi leikmaður, í góðu formi og með góðan vinstri fót."
Athugasemdir