Valsmenn unnu 1-0 sigur gegn Víkingi í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins í kvöld. Sigurbjörn Hreiðarsson telur að úrslitin hafi verið sanngjörn þó Víkingar hafi ógnað á lokakaflanum.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 0 Víkingur R.
„Heilt yfir í leiknum vorum við betri, við vorum meira með boltann en forystan var bara eitt mark og þeir sóttu í lokin. Þetta var hörkuleikur," sagði Sigurbjörn en Valur mætir Leikni í úrslitum á mánudag.
Á dögunum samdi Valur við danskan sóknarmann sem á að fylla skarð markakóngs síðasta tímabils, Patrick Pedersen. Við báðum Bjössa að lýsa honum.
„Hann heitir Nikolaj (Hansen), þó ekki Nikolaj sem skiptir um tímareimar," sagði Bjössi kíminn.
„Þetta er stór og ungur danskur senter, 23 ára. Hann er aðeins öðruvísi týpa en Patrick en það fer góðum sögum af honum. Patrick skilur eftir sig rosalegt skarð, besti sóknarmaður á Íslandi"
Miðjumaðurinn Kristinn Freyr Sigurðsson fór á dögunum til reynslu hjá Tromsö í Noregi. Verður hann með Val í sumar?
„Það eru klúbbar sem hafa áhuga á Kidda enda hefur hann staðið sig frábærlega hér á Íslandi. Það er ekkert alvarlegt í gangi núna og hann er bara leikmaðurinn okkar og einn af máttarstólpum liðins."
„Við þurfum stærri hóp. Við fundum það í fyrra að við þurftum þéttari hóp. Við vonumst til að ná því en þurfum að vanda valið," sagði Sigurbjörn meðal annars en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir