Tvö efstu lið þýsku úrvalsdeildarinnar komust sannfærandi áfram í þýsku bikarkeppninni í kvöld.
Daniel Caligiuri og Timm Klose skoruðu mörk Wolfsburg sem vann 2-0 útisigur gegn B-deildarliðinu RB Leipzig.
David Alaba og Mario Götze skoruðu mörk Bayern München sem vann 2-0 sigur á heimavelli gegn B-deildarliðinu Eintracht Braunschweig.
Arminia Bielefeld komst áfram með 3-1 sigur gegn Werder Bremen og Borussia Mönchengladbach vann 2-0 sigur á Kickers Offenbach.
Í gær komst Borussia Dortmund áfram með 2-0 sigri gegn C-deildarliðinu Dynamo Dresden. Ciro Immobile skoraði bæði mörkin þar en honum hefur gengið bölvanlega upp við mark andstæðingana í þýsku deildinni.
Athugasemdir