Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 04. mars 2015 11:21
Magnús Már Einarsson
Byrjunarlið Íslands - Lára spilar sinn fyrsta landsleik
Lára Kristín Pedersen.
Lára Kristín Pedersen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Sviss í Algarve mótinu klukkan 15:00 í dag.

Íslenska liðið mun spila 4-2-3-1 í leiknum í dag.

Lára Kristín Pedersen mun spila sinn fyrsta landsleik en hún byrjar í vinstri bakverði. Lára er ein af fimm leikmönnum Stjörnunnar í byrjunarliðinu í dag.

,,Við ætlum að sitja aðeins til baka og pressa þegar það á við," sagði Ásmundur Haraldsson aðstoðarþjálfari í morgun.

,,Við ætlum að þétta og loka miðsvæðinu. Við ætlum ekki að leyfa þeim að komast bakvið okkur. Við sitjum aftar og þéttum allt til að loka öllum mögulegum svæðum."

Byrjunarlið Íslands
Sandra Sigurðardóttir
Anna María Baldursdóttir
Anna Björk Kristjánsdóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Lára Kristín Pedersen
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir
Hólmfríður Magnúsdóttir
Fanndís Friðriksdóttir
Elín Metta Jensen
Athugasemdir
banner