Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. mars 2015 09:35
Magnús Már Einarsson
Danilo til Manchester United?
Powerade
Danilo er orðaður við Manchester United.
Danilo er orðaður við Manchester United.
Mynd: Getty Images
Luciano Vietto.
Luciano Vietto.
Mynd: Getty Images
Slúðurpakkinn er að sjálfsögðu á sínum stað í dag eins og alla aðra daga. Ensku blöðin eru með nóg slúður fyrir sumargluggann!



Liverpool og Real Madrid hafa áhuga á Luciano Vietto framherja Villarreal en hann er falur fyrir 7,25 milljónir punda. (AS)

Petr Cech mun líklega fara frá Chelsea í sumar. (The Times)

Manchester United á í viðræðum við Porto um kaup á Danilo. Þessi 23 ára gamli hægri bakvörður er með klásúlu um að hann megi fara á 37 milljónir punda. (Sport)

Roberto Martinez, stjóri Everton, ætlar að gera aðra tilraun til að fá Sergi Roberto miðjumann Barcelona. (Daily Mirror)

Sam Allardyce, stjóri West Ham, segist ekki hafa hugmynd um hvað Winston Reid gerir þegar samningur hans rennur út í sumar. Allardyce hefur grínast með að það þurfi að setja Jack Bauer í málið. (Daily Mirror)

Arsenal er að bíða eftir svari eftir að hafa boðið í Jonathan Calleri framherja Boca Juniors. (Fichajes.net)

Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, segist hafa óttast um starf sitt fyrr á tímabilinu en hann er rólegri núna eftir góða byrjun á þessu ári. (Times)

Terry Butcher, fyrrum fyrirliði enska landsliðsins, telur að John Terry verðskuldi lengra en eins árs samning hjá Chelsea. (Talksport)

Jose Mourinho segir að Terry fái einungis boð um eins árs samning. (Sun)

Calro Ancelotti, þjálfari Real Madrid, gæti komið til greina sem næsti stjóri Manchester City ef Manuel Pellegrini verðu rekinn. (Daily Mirror)

Winston Bogarde, fyrrum leikmaður Chelsea, hefur sótt um að gerast stjóri Oldham. (Daily Mail)

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur sett stefnuna á 91 stig í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. (Turnstyle.co.uk)
Athugasemdir
banner
banner
banner