Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 04. mars 2015 18:51
Ívan Guðjón Baldursson
England - Byrjunarlið efstu liða: Herrera og Fellaini byrja
Kompany, Cuadrado og Welbeck bekkjaðir
Þessir eru í byrjunarliði Rauðu djöflanna í kvöld.
Þessir eru í byrjunarliði Rauðu djöflanna í kvöld.
Mynd: Getty Images
Það eru sjö leikir á dagskrá í ensku Úrvalsdeildinni í kvöld og hér fyrir neðan má sjá byrjunarlið fjögurra efstu liða deildarinnar.

Topplið Chelsea heimsækir West Ham í nágrannaslag og Manchester United á útileik gegn Newcastle á meðan Manchester City og Arsenal eiga heimaleiki gegn fallbaráttuliðum Leicester og QPR.

Diego Costa er fremsti maður Chelsea sem teflir fram sínu sterkasta liði í nágrannaslagnum. Kólumbíumaðurinn Juan Cuadrado er á bekknum til að gera pláss fyrir Oscar og Cesc Fabregas.

Vincent Kompany er á bekknum hjá Englandsmeisturum Man City og er Wilfried Bony þeirra fremsti maður í kvöld.

Tomas Rosicky er í byrjunarliði Arsenal og heldur mönnum á borð við Danny Welbeck, Theo Walcott og Alex Oxlade-Chamberlain á bekknum.

Þá eru Ander Herrera og Marouane Fellaini báðir á miðjunni hjá Man Utd og tekur Wayne Rooney sér stöðu sem fremsti maður meðan Radamel Falcao er geymdur á bekknum.

Chelsea: Courtois, Ivanovic, Cahill, Terry, Azpilicueta, Zouma, Ramires, Fabregas, Oscar, Hazard, Costa
Varamenn: Cech, Filipe Luis, Loftus-Cheek, Cuadrado, Willian, Remy, Drogba

Man City: Hart, Sagna, Demichelis, Mangala, Kolarov, Fernando, Navas,Toure, Silva, Aguero, Bony
Varamenn: Caballero, Zabaleta, Clichy, Kompany, Milner, Lampard, Dzeko

Arsenal: Ospina, Bellerin, Mertesacker, Gabriel, Gibbs, Coquelin, Cazorla, Rosicky, Ozil, Alexis, Giroud
Varamenn: Martinez, Koscielny, Chambers, Ramsey, Oxlade-Chamberlain, Walcott, Welbeck

Man Utd: De Gea, Valencia, Smalling, Evans, Rojo, Blind, Herrera, Di Maria, Fellaini, Young, Rooney
Varamenn: Lindegaard, Jones, McNair, Carrick, Mata, Januzaj, Falcao
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner