Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 04. mars 2015 22:34
Magnús Már Einarsson
Henderson: Þarf að sýna fordæmi í fjarveru Gerrard
Henderson fagnar marki sínu í kvöld.
Henderson fagnar marki sínu í kvöld.
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson skoraði fyrra mark Liverpool og lagði upp það síðara í 2-0 sigri á Burnley í kvöld. Henderson var einnig á skotskónum gegn Manchester City um síðustu helgi.

,,Við vissum að við þyrftum að halda áfram eftir að hafa unnið lið eins og Manchester City. Við vissum að Burnley myndi gera þetta erfitt fyrir okkur og þetta voru þrjú stór stig," sagði Henderson.

,,Þetta var góð frammistaða og við þurfum að byggja ofan á hana," bætti Henderson við en hann hefur verið fyrirliði að undanförnu í fjarveru Steven Gerrard.

,,Ég vil halda áfrma að gera það sem ég hef verið að gera sem fyrirliði. Þegar Steven Gerrard er ekki með þá reyni ég að sýna fordæmi en vonandi getum við fengið hann sem fyrst aftur því að hann er mikilvægur leikmaður fyrir okkur."
Athugasemdir
banner