Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 04. mars 2015 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Klose og Gabbiadini skoruðu í undanúrslitum
Mynd: Getty Images
Lazio 1 - 1 Napoli
1-0 Miroslav Klose ('33)
1-1 Manolo Gabbiadini ('58)

Lazio tók á móti Napoli í undanúrslitaleik ítalska bikarsins í kvöld, en Juventus og Fiorentina eiga leik annað kvöld.

Leikurinn var gríðarlega fjörugur þar sem bæði lið fengu gríðarlegt magn færa án þess að nýta þau nógu vel.

Miroslav Klose kom Lazio yfir í fyrri hálfleik og Manolo Gabbiadini jafnaði fyrir gestina í þeim síðari. Liðin mætast aftur á heimavelli Napoli í apríl.
Athugasemdir
banner
banner
banner