Kristján Guðmundsson þjálfari Keflavíkur neitaði því ekki að honum fannst sínir menn eiga sigurinn skilið þegar Keflavík gerði 3-3 jafntefli við Val í leik sem spilaður var í Reykjaneshöllinni í kvöld.
Við áttum alveg skilið að vinna leikinn já, ég er alveg sammála því, miðað við fjölda færa. En við erum sáttir við frammistöðuna, sagði Kristján í samtali við Fótbolta.net.
Við áttum alveg skilið að vinna leikinn já, ég er alveg sammála því, miðað við fjölda færa. En við erum sáttir við frammistöðuna, sagði Kristján í samtali við Fótbolta.net.
Valsararnir neituðu að láta rúlla yfir sig hérna í Keflavík, þeir komu til baka eftir að við komumst yfir og það er bara eðlilegt að leikirnir sveiflist svona til. Heilt yfir erum við að skapa mörg færi, en á móti kemur erum við að fá á okkur ódýr mörk og það er það sem hefur háð okkur í leikjunum eftir áramót. En það á að vera hægt að laga það, er ekki alltaf auðveldast að styrkja varnarleikinn? sagði Kristján léttur í bragði.
Við erum búnir að semja við Kiko Insa og svo erum við að skoða tvo í viðbót. Það gengur ekki vel að semja við Þór en við gefumst ekki upp. Það er svo vonandi að við náum inn einum í viðbót ef ég tala stjórnina vel til.
Athugasemdir