Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 04. mars 2015 22:52
Magnús Már Einarsson
Matic meiddist í fagnaðarlátunum á Wembley
Matic hefur verið stórkostlegur á tímabilinu.
Matic hefur verið stórkostlegur á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Nemanja Matic tók út síðari leik sinn í leikbanni þegar Chelsea sigraði West Ham 1-0 í kvöld.

Matic var einnig í banni þegar Chelsea sigraði Tottenham í úrslitaleik enska deildabikarsins um helgina.

Matic fór aðeins fram úr sjálfum sér í fagnaðarlátunum á Wembley en hann meiddist á ökkla.

Meiðslin eru þess eðlis að Matic hefði ekki verið leikfær gegn West Ham í kvöld ef hann hefði ekki verið í banni.

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, staðfesti þó að Matic muni hefja æfingar að nýju um helgina og ná leiknum gegn PSG í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næstu viku.

Hér að neðan má sjá Matic fagna titlinum um síðustu helgi með stæl.



Athugasemdir
banner
banner
banner