Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. mars 2015 07:30
Alexander Freyr Tamimi
Rodwell: Boltinn fór í höndina á mér í markinu
Rodwell skallaði boltann í höndina á sér og inn.
Rodwell skallaði boltann í höndina á sér og inn.
Mynd: Getty Images
Jack Rodwell, miðjumaður Sunderland, viðurkennir að boltinn hafi farið í höndina á honum í jöfnunarmarkinu gegn Hull City í gær.

Þessi fyrrum leikmaður Everton og Manchester City jafnaði metin í 1-1 gegn Hull þegar hann skallaði fyrirgjöf Patrick van Aanholt í netið, en hann viðurkennir að markið hefði með réttu ekki átt að standa.

,,Í hreinskilni sagt, þá gerðist þetta allt mjög hratt," sagði Rodwell við blaðamenn.

,,Þetta var frábær fyrirgjöf frá Patrick en ég hélt að markvörðurinn hefði boltann. Svo datt hann niður alveg í lokin og ég hélt að hann hefði farið í slána, en ég var sem betur fer á réttum stað á réttum tíma."

,,Ég veit að boltinn fór í höndina á mér, en þessi mörk telja öll og sem betur fer lét dómarinn það standa."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner