Nú hefur verið flautað til hálfleiks í leik Tottenham og Swansea en fyrri hálfleikurinn var afar tíðindamikill og sex mínútum bætt við hann eftir að Batefimbi Gomis féll í yfirlið.
Staðan í hálfleik er 1-1. Nacer Chadli kom Tottenham yfir eftir sjö mínútur.
Staðan í hálfleik er 1-1. Nacer Chadli kom Tottenham yfir eftir sjö mínútur.
Á 20. mínútu jafnaði Ki Sung-Yueng eftir að Gylfi Þór Sigurðsson hafði átt frábært skot úr aukaspyrnu í stöngina.
Gylfi er að leika gegn sínum fyrrum félögum og hefði alls ekki leiðst að ná að skora þarna. Hann hefur þó enn 45 mínútur til að skora í leiknum.
Hér að neðan má sjá Vine-myndband af aukaspyrnu Gylfa.
Athugasemdir