Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 04. mars 2015 14:00
Magnús Már Einarsson
Tim Sherwood: Betra en að vinna Eurojackpot
Mynd: Getty Images
Tim Sherwood, stjóri Aston Villa, var í skýjunum eftir 2-1 sigur liðsins á WBA í gær.

Þetta var fyrsti sigur Aston Villa síðan Sherwood tók við liðinu á dögunum.

,,Þetta er besta tilfinning í heimi," sagði Sherwood eftir leikinn í gær.

,,Þegar ég fór að heiman þá sagðist konan mín hafa keypt miða í Eurojackpot þar sem 54 milljónir punda voru í vinning."

,,Ég sagði við hana að ég myndi allan daginn frekar vilja fá þrjú stig en að vinna þann pott."

Athugasemdir
banner
banner