Tómas Ingi Urbancic, leikmaður Reading, er á leið í Víking R. á láni en þetta staðfesti umboðsmaður hans Ólafur Garðarsson í samtali við Fótbolta.net í dag.
Að sögn Ólafs er nánast búið að ganga frá samningum en Tómas verður á láni hjá Víkingi til 1. júlí til að byrja með.
Að sögn Ólafs er nánast búið að ganga frá samningum en Tómas verður á láni hjá Víkingi til 1. júlí til að byrja með.
Tómas er fæddur árið 1996 en hann spilar framarlega á miðjunni eða á kanti.
Tómas spilaði einn bikarleik með Víkingi árið 2013 áður en hann gekk í raðir Reading þar sem hann hefur verið í unglingaliðinu.
Á ferli sínum hefur Tómas leikið bæði með U17 og 19 ára landsliði Íslands en hann var fyrst í yngri flokkum KR áður en hann fór í Víking árið 2011.
Athugasemdir