Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. mars 2015 22:12
Ívan Guðjón Baldursson
Van Gaal: Mögulega besta frammistaða tímabilsins
Það eru ekki allir sammála fullyrðingu Louis van Gaal.
Það eru ekki allir sammála fullyrðingu Louis van Gaal.
Mynd: Getty Images
Manchester United skóp dramatískan sigur gegn Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni fyrr í kvöld.

Ashley Young gerði sigurmarkið eftir hræðileg mistök í varnarleik Newcastle og telur Louis van Gaal þetta hafa verið bestu frammistöðu sinna manna á tímabilinu.

,,Mér fannst við stjórna leiknum allar 90 mínúturnar, mögulega besti leikur tímabilsins, sérstaklega því við verðskulduðum sigurinn á erfiðum útivelli," sagði Van Gaal eftir leikinn.

,,Við sköpuðum fullt af færum og hefðum getað skorað miklu fyrr. Þeir fengu líka tvö dauðafæri en David de Gea bjargaði okkur.

,,Það sem skilaði sigrinum var brjálað hlaup frá Wayne Rooney eftir töpuðum bolta. Það sýnir baráttuvilja liðsins."

Athugasemdir
banner
banner
banner