„Þetta er ekki eins og við lögðum upp með að byrja mótið," sagði Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, eftir 1-3 tap gegn FH í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar.
Lestu um leikinn: KR 1 - 3 FH
„FH er vel mannað og með góðan þjálfara og við vissum að þetta yrði erfiður leikur. Við komumst yfir verðskuldað og vorum óheppnir að skora ekki fleiri. Svo erum við klaufar og klárum ekki leikinn."
„Við verðum að skoða hvernig við verjumst í föstum leikatriðum. Það er greinilega ekki í lagi."
„Allt hrós til markmanns þeirra. Hann varði vel og svo var vörnin dugleg að sópa upp eftir hann," sagði Bjarni en Róbert Örn Óskarsson, markvörður FH, átti mikilvægar vörslur og bjargaði Hafnarfjarðarliðinu.
Viðtalið má sjá í heild í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir