Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 04. maí 2015 20:00
Elvar Geir Magnússon
Gunnar Már og Arnór Eyvar með í næsta leik
Herra Fjölnir - Gunnar Már Guðmundsson.
Herra Fjölnir - Gunnar Már Guðmundsson.
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Gunnar Már Guðmundsson og Arnór Eyvar Ólafsson voru fjarri góðu gamni þegar Fjölnir sigraði ÍBV 1-0 í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar í gærkvöldi.

Ágúst Þór Gylfason, þjálfari Fjölnis, vonast til að þeir verði báðir klárir í slaginn gegn Fylki eftir viku.

„Ég reikna með að þeir komi inn í næsta leik. Það er smá hnjask á þeim en þeir verða báðir klárir," sagði Ágúst Gylfason þjálfari Fjölnis eftir leikinn í gær.

Kantmaðurinn Viðar Ari Jónsson spilaði í stöðu vinstri bakvarðar en Guðmundur Karl Guðmundsson, sem hefur spilað þá stöðu í vetur, fór á miðjuna í fjarveru Gunnars Más.

Miðvörðurinn Daniel Ivanovski var síðan hægri bakvörður í fjarveru Arnórs en þeir Bergsveinn Ólafsson og Atli Már Þorbergsson spiluðu í hjarta varnarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner