Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 04. maí 2015 14:15
Magnús Már Einarsson
Lewandowski æfði með grímu fyrir Barcelona leikinn
Grímuklæddur.
Grímuklæddur.
Mynd: Getty Images
Robert Lewandowski, framherji FC Bayern, var mættur með grímu á æfingu í dag.

Lewandowski nef og kinnbeinsbrotnaði gegn sínum gömlu félögum í Dortmund í síðustu viku.

Pólverjinn hvíldi í sigri Bayern á Bayer Leverkusen um helgina en vonir standa til að hann geti spilað gegn Barcelona í Meistaradeildinni á miðvikudag.

„Hann óttast ekki neitt. Hann er mjög hugrakkur og mun venjast grímunni," sagði Jerome Boateng liðsfélagi Lewandowski eftir æfinguna í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner