Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 04. maí 2015 18:30
Magnús Már Einarsson
Marc Lladosa Ferrer ekki í Leikni F. - Fer í Njarðvík (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Njarðvík hefur samið við spænska miðjumanninn Marc Lladosa Ferrer.

„Með þessu er ætlunin að styrkja lið okkar á því svæði sem okkur finnst vanta í okkar lið á þessari stundu. Einnig er gott að geta komið með nýtt blóð inní hópinn á þessum tímapunkti," segir á Facebook síðu Njarðvíkur.

Hinn 31 árs gamli Ferrer skoraði fimm mörk í níu leikjum með Leikni Fáskrúðsfirði á síðasta tímabili.

Á dögunum greindi Leiknir frá því að Ferrer yrði með liðinu í sumar en nú er ljóst að svo er ekki því hann hefur samið við keppinauta í 2. deildinni.

Njarðvíkingum er spáð 6. sætinu í 2. deildinni í sumar en liðið mætir Hetti í fyrstu umferðinni næstkomandi laugardag.
Athugasemdir
banner
banner
banner