Barcelona bindur vonir við að halda Dani Alves hjá félaginu þrátt fyrir að hann hafi verið sterklega orðaður við félög á Englandi.
Þessi 31 árs gamli Brasilíumaður verður samningslaus í sumar og í vetur hafa fréttir sagt að hann muni fara frá Barcelona.
Barcelona bindur aftur á móti ennþá vonir um að halda Alves.
Þessi 31 árs gamli Brasilíumaður verður samningslaus í sumar og í vetur hafa fréttir sagt að hann muni fara frá Barcelona.
Barcelona bindur aftur á móti ennþá vonir um að halda Alves.
„Hann er mikilvægur leikmaður sem gefur liðinu mikið," sagði Josep Maria Bartomeu forseti Barcelona.
„Ég vona að hann framlengi. Við höfum beðið hann um það og við erum í viðræðum. Ég veit að hann myndi vilja vera áfram og Barca vill halda honum."
Athugasemdir