Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 04. maí 2015 23:45
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Snjallboltinn frá Adidas
Adidas sá um framleiðslu á Brazuca boltanum fyrir HM í Brasilíu síðasta sumar.
Adidas sá um framleiðslu á Brazuca boltanum fyrir HM í Brasilíu síðasta sumar.
Mynd: Adidas
Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndband þar sem Adidas miCoach boltinn er kynntur til sögunnar.

Boltinn er sérstakur á þann hátt að það eru skynjarar á honum sem greina hvernig spyrnt er í boltann og hvað má bæta við spyrnuna.

Þessi bolti er gríðarlega sniðugur, enda kallaður snjallbolti, og útskýrir Tony, starfsmaður Adidas, virkni boltans sem tengist í síma.

Ekki er ljóst hversu mikið svona bolti kemur til með að kosta en fjöldaframleiðsla á boltanum er ekki enn hafin enda á eftir að fullkomna hann.


Athugasemdir
banner
banner
banner