Pálmi Rafn Pálmason fyrirliði KR var að vonum hundsvekktur eftir 3-1 tap sinna manna gegn FH á heimavelli í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar.
KR-ingar komumst yfir í upphafi seinni hálfleiks en fengu síðan þrjú mörk á sig á lokakaflanum.
KR-ingar komumst yfir í upphafi seinni hálfleiks en fengu síðan þrjú mörk á sig á lokakaflanum.
Lestu um leikinn: KR 1 - 3 FH
„Þetta var svo sannarlega ekki sú byrjun sem við óskuðum eftir. Þetta var leikur sem gat dottið báðum megin og því miður datt hann FH-megin í dag."
„Þeir skora úr tveimur föstum leikatriðum og það er ekki þannig sem maður vill hleypa inn mörkum. Það er leiðinlegt að tapa þessu en mótið er bara að byrja núna. Þetta er enginn heimsendir," sagði Pálmi Rafn.
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir