Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 04. maí 2016 07:00
Óðinn Svan Óðinsson
Bók um Jamie Vardy kemur út í haust
Vardy með tvífara
Vardy með tvífara
Mynd: Getty Images
Öskubuskusaga Jamie Vardy var fullkomnuð á mánudagskvöldið þegar lið hans Leicester vann ensku úrvalsdeildina.

Jamie hefur eins og oft hefur komið fram átt afar skrautlegan feril og unnið sig úr því að spila í neðri deildum í það vera einn heitasti framherji Evrópu.

Bíómynd um kappann er í bígerð og hafa birst margar fréttir um það hver muni leika hann en handrit myndarinnar er í höndum Adrian Butchart sem gerði hinar ógleymanlegu Goal myndir.

Ævintýið er þó hvergi nærri á enda þvi nú hefur Jamie Vardy hefið það út á twitter síðu sinni að hann muni gefa út ævisögu sína en bókin mun koma út í haust.



Athugasemdir
banner
banner