Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 04. maí 2016 08:30
Óðinn Svan Óðinsson
Pellegrini: Real Madrid er ekki bara Ronaldo
Pellegrini er reffilegur kall
Pellegrini er reffilegur kall
Mynd: Getty Images
Manuel Pellegrini var léttur, ljúfur og kátur á blaðamannafundi fyrir leik sinna manna í Manchester City gegn stórliði Real Madrid sem fram fer í kvöld.

Pellegrini grínaðist með það að honum þætti best ef Ronaldo tæki sér hvíld í leiknum í kvöld en Ronaldo hefur verið að glíma við meiðsli.

Ronaldo missti af fyrri leik liðanna sem lauk með markalausu jafntefli en hann hefur nú náð fullum bata og verður með sínum mönnum í kvöld.

„Cristiano veðrur alltaf sérstakur leikmaður, hann skorað gríðarlega mikið af mörkum á þeim sex árum sem hann hefur verið hjá Madríd,” sagði Pellegrini.

„Real Madrid er samt ekki bara Cristioano Ronaldo, við þrufum að spila vel sem lið, verjast og sækja, ekki bara gegn Ronaldo heldur öllu Real Madrid liðinu.”
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner