Heimild: Leicester Mercury
James og Sarah, ársmiðahafar hjá Leicester, hafa skírt nýfædda dóttur sína í höfuðið á knattspyrnustjóranum Claudio Ranieri. Hún hefur fengið nafnið Claudia.
Ranieri hefur skilað Englandsmeistaratitli í hús sem er eitt af stóru íþróttaafrekum sögunnar.
Ranieri hefur skilað Englandsmeistaratitli í hús sem er eitt af stóru íþróttaafrekum sögunnar.
„Þess má geta að dóttir Ranieri heitir líka Claudia. Ég var svo ánægð með það þegar hann tók við. Hann er auðmjúkur og góð fyrirmynd," segir Sarah.
„Claudia hefur þegar hafið líf sem stuðningsmaður Leicester og er búin að eignast trefil merktan félaginu."
Leicester mun lyfta Englandsmeistarabikarnum á laugardag, eftir heimaleik gegn Everton.
Sjá einnig:
Pistill: Ævintýri Leicester
Sjáðu íslenska Leicester aðdáandann fagna
Athugasemdir