Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 04. júlí 2015 13:26
Eyþór Ernir Oddsson
Eiður í læknisskoðun hjá Shijiazhuang Ever Bright á morgun
Mynd: Getty Images
Landsliðsmaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen er ekki enn búinn að skrifa undir samning við kínverska liðið Shijiazhuang Ever Bright.

Hann verður meðal áhorfenda á leik liðsins gegn Changchun Yatai í kvöld en hann fer í læknisskoðun á morgun. Þetta kemur fram á stuðningsmannasíðu hans á Facebook.

Kínverskir fjölmiðlar hafa greint frá því í vikunni að Eiður væri búinn að semja við félagið, en það er ekki alveg svo. Hann skrifar svo væntanlega undir samning fljótlega að lokinni læknisskoðun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner