Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
banner
   lau 04. júlí 2015 18:48
Gabríel Sighvatsson
Ingi Sig: Til hamingju Jói
Fylkismaður ruddist inn í miðju viðtali
Ingi Sigurðsson.
Ingi Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingi Sigurðsson var að vonum sáttur með sína menn eftir 4-0 sigur á Fylki í dag.

Lestu um leikinn: ÍBV 4 -  0 Fylkir

„Það er ekki hægt annað en að vera bara himinlifandi með þetta, miðaða við gang seinni hálfleiksins þá var 4-0 síst of lítið," sagði Ingi.

„Í fyrri hálfleik fannst mér við ekki vera með alveg nógu góða stjórn á leiknum en við náðum að endurstilla menn í hálfleik og það sást í seinni hálfleik að menn voru ákveðnir í að klára þennan leik almennilega,"

Skemmtileg uppákoma varð þegar Fylkismaður ruddist inn í mitt viðtal og ræddi aðeins við Inga og lét í ljós óánægju sína með leik síns liðs. Hann lét sig þó hverfa fljótlega á braut.

Aðspurður um stöðu Jóa Harðar hafði Ingi þetta að segja:

„Jói er engan veginn út úr þessu, við erum i daglegu sambandi við hann og hann leggur upp leikina í samráði við okkur. Við vonum auðvitað að hann komi sem fyrst og ef Jói er að horfa á þetta, „Til hamingju Jói"" sagði Ingi að lokum.
Athugasemdir
banner
banner