Heimild: Daily Mail
Marcos Rojo, varnarmaður Man Utd, hefur komið liðsfélaga sínum Angel Di Maria, til varnar eftir mikla gagnrýni og segir hann vera jafn góðan og Lionel Messi og Cristiano Ronaldo.
Di Maria átti mjög erfitt fyrsta tímabil hjá Man Utd, en hann kom þangað eftir góð ár hjá Real Madrid.
Di Maria átti mjög erfitt fyrsta tímabil hjá Man Utd, en hann kom þangað eftir góð ár hjá Real Madrid.
"Fólk gleymir að á síðasta tímabili var Di Maria að aðlagast nýrri deild. Fólkið sá bara stóra kaupverðið og hugsaði ekki um það hvað enska deildin er frábrugðin þeirri spænsku," sagði Rojo.
Rojo hefur hins vegar mikla trú á Di Maria og líkir honum við þá bestu, Messi og Ronaldo.
"Di Maria er með þeim bestu í heiminum og á góðum degi er hann jafn góður og Messi og Ronaldo."
Rojo og Di Maria eru báðir lykilmenn í liði Argentínu sem að mætir Síle í úrslitum Suður-Ameríku bikarsins í kvöld.
Athugasemdir