Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 04. júlí 2015 14:34
Eyþór Ernir Oddsson
Viðar Örn með sigurmark Jiangsu Guoxin-Sainty
Mynd: Kenneth Myhre - Kennethmyhre.net
Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson var hetja Jiangsu Guoxin-Sainty þegar liðið mætti Guizhou Renhe í kínversku úrvalsdeildinni í dag.

Markið kom á 38. mínútu en Viðar spilaði 86 mínútur í þessum leik meðan að Sölvi Geir Ottesen spilaði allan leikinn.

Jiangsu Guoxin-Sainty fer því upp í sjötta sætið í deildinni, en Guizhou er í næst neðsta sæti eða fimmtánda.

Matthías Vilhjálmsson er einnig búinn að skora fyrir Start sem á heimaleik gegn Stabæk, en hann og Guðmundur Kristjánsson eru í byrjunarliði Start og Ingvar Jónsson situr á bekknum.
Athugasemdir
banner
banner