Fotbolti.net
04.07.17 - 13:34
Magnús Már Einarsson

Arnór Ingvi mættur til Grikklands

Arnór Ingvi bregður á leik.

Arnór Ingvi bregður á leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Ingvi Traustason er mættur til Grikklands til að ganga frá lánssamningi við AEK Aþenu.

Grískir fjölmiðlar hafa birt myndir af Arnór með AEK Aþenu trefil við komuna til Grikklands eins og sjá má hér og neðst í fréttinni.
Arnór er á leið til AEK Aþenu á láni fram á næsta sumar en gríska félagið getur síðan keypt hann á eina milljón evra í kjölfarið.

Arnór kom til Rapid Vín í fyrrasumar eftir að hafa árið áður orðið sænskur meistari með Norrköping. Meiðsli settu strik í reikninginn á fyrsta tímabili Arnórs í Austurríki en Rapid Vín endaði í 5. sæti.

Arnór Ingvi er 24 ára gamall en hann hefur skorað fimm mörk í þrettán leikjum með íslenska landsliðinu á ferli sínum.

AEK endaði í 4. sæti í grísku deildinni á síðasta tímabili en liðið vann síðan umspil um sæti í Meistaradeildinni. Eiður Smári Guðjohnsen og Elfar Freyr Helgason voru á mála hjá félaginu fyrir nokkrum árum en þá var Arnar Grétarsson yfirmaður íþróttamála þar.

Breaking: Icelandic winger Arnor Traustason just landed in Athens to complete his loan move to AEK from Rapid Wien pic.twitter.com/QOoEIhmxBI

— Dimitris Vergos (@dimitrisvergos) July 4, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.