Real Madrid 2 - 0 Tottenham
1-0 James Rodriguez ('36)
2-0 Gareth Bale ('79)
1-0 James Rodriguez ('36)
2-0 Gareth Bale ('79)
Real Madrid lagði Tottenham af velli í fyrsta leik Audi bikarsins í dag. Þetta er fjórða skiptið sem Audi bikarinn er haldinn á Allianz Arena, heimavelli Bayern München. Keppnin hefur verið haldin á öðru hverju ári síðan 2009.
Bæði Real og Spurs tefldu fram sterkum byrjunarliðum og gerði James Rodriguez fyrsta mark leiksins seint í fyrri hálfleik.
Leikurinn var frekar jafn en Gareth Bale, sem fór frá Spurs til Real á metfé, innsiglaði sigur Spánverjanna með marki undir lok leiksins.
Bayern mætir AC Milan í kvöld og spilar sigurliðið úr þeirri viðureign úrslitaleikinn við Real Madrid.
Athugasemdir