Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 04. ágúst 2015 20:41
Ívan Guðjón Baldursson
Audi bikarinn: Milan átti ekki séns í Bayern
Mario Götze byrjaði upp á topp hjá Bayern og skoraði annað mark leiksins.
Mario Götze byrjaði upp á topp hjá Bayern og skoraði annað mark leiksins.
Mynd: Getty Images
Bayern München 3 - 0 AC Milan
1-0 Juan Bernat ('24)
2-0 Mario Götze ('74)
3-0 Robert Lewandowski ('85)

Bayern München mætir Real Madrid í úrslitaleik Audi bikarsins eftir öruggan sigur á AC Milan.

Bæði lið tefldu fram gríðarlega öflugum byrjunarliðum en Bayern stjórnaði leiknum frá upphafi til enda og uppskar sanngjarnan þriggja marka sigur.

Miðjumaðurinn ungi Joshua Kimmich, sem er nýkominn til Bayern frá Stuttgart, þurfti að fara af velli um miðjan fyrri hálfleik eftir harkalega tæklingu frá Nigel de Jong, miðjumanni Milan. Pep Guardiola, þjálfari Bayern, lét De Jong heyra það í hálfleik og brýndi fyrir honum að þetta væri vináttuleikur.

Real Madrid lagði Tottenham af velli með tveimur mörkum gegn engu fyrr í dag í mun jafnari leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner