AZ Alkmaar hefur staðfest á heimasíðu sinni að bandaríski landsliðsmaðurinn Aron Jóhannsson sé á leið til Werder Bremen.
Hollenska félagið hefur tekið tilboði þýska úrvalsdeildarfélagsins í Aron og er hann nú í viðræðum um kaup og kjör.
Hollenska félagið hefur tekið tilboði þýska úrvalsdeildarfélagsins í Aron og er hann nú í viðræðum um kaup og kjör.
Hér að neðan má sjá viðtal við Aron af heimasíðu AZ.
„Það er góð tilfinning að taka næsta skref á ferlinum og augljóslega er gott að fara í þýsku deildina sem er ein sú besta í heimi. Það eru spennandi tímar framundan," segir Aron í viðtalinu.
„Þegar Werder Bremen sýndi mér áhuga var þetta ekki mjög erfitt val. Maður er að fara í stærra félag í stærri deild. Þetta er skref í rétta átt fyrir mig."
„Ég lærði mikið hjá AZ Alkmaar og ég hef notið tímans hér. Ég mun sakna félagsins."
Athugasemdir