Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 04. ágúst 2015 11:25
Elvar Geir Magnússon
Di Maria of þreyttur fyrir læknisskoðun
Di Maria er á leið til Parísar.
Di Maria er á leið til Parísar.
Mynd: Getty Images
Angel Di Maria er á leið frá Manchester United til Paris St-Germain. Hann flaug frá Argentínu til Katar þar sem læknisskoðun franska félagsins á að fara fram.

Hann lenti í Katar eldsnemma á sunnudagsmorgun eftir 20 tíma ferðalag. Samkvæmt enskum fjölmiðlum var hann of þreyttur til að fara í læknisskoðun og ákvað að fara upp á hótel og leggja sig í staðinn.

Í gær fékk hann sér svo morgunmat eftir langan svefn og fór í nudd og meðhöndlun til að búa sig undir læknisskoðunina.

Í dag heldur skoðunin áfram áður en Di Maria mun ferðast til Parísar og skrifa undir fjögurra ára samning.

Di Maria var eitt tímabil hjá Manchester United eftir að hafa komið frá Real Madrid en fann sig ekki hjá enska liðinu þrátt fyrir lofandi byrjun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner