Nýliðar Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni hafa tryggt sér þjónustu Max Gradel frá St Etienne. Gradel er 27 ára en hann lék með Bournemouth á lánssamningi frá Leicester 2007-2008.
Hann hefur leikið 41 leik fyrir landslið F'ilabeinsstrandarinnar og varð Afríkumeistari með liðinu fyrr á þessu ári.
2010 gekk hann í raðir Leeds en ári seinna fór hann til St Etienne þar sem hann skoraði 17 mörk í 23 byrjunarliðsleikjum síðasta tímabil.
Bournemouth á leik gegn Aston Villa á laugardag í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir