„Mér fannst við vera með leikinn allan tímann í okkar höndum og vorum allan tímann líklegri, þetta er virkilega flott lið þarna en ég held að það sitji svolítið í þeim leikurinn gegn Val í bikarnum og við nýttum okkur það," sagði Luka Kostic þjálfari Hauka eftir sigur hans lærisveina gegn KA í 1.deild karla í dag, leiknum lauk með 2-0 sigri þeirra rauðklæddu.
Lestu um leikinn: Haukar 2 - 1 KA
„Við erum ánægðir, við erum komnir í 20 stig og í raun og veru ætlum við að byggja á þessum hóp næstu tíu árin og þess vegna þurfum við að safna sem flestum stigum í ár svo við getum gert alvöru atlögu að því að fara upp í efstu deild á næstu tveimur til þremur árum."
Björgvin Stefánsson hefur átt gífurlega gott tímabil fyrir Hauka.
„Það er enginn sem hefur verið í sambandi við okkur útaf honum, en ég er ekki viss um að margir okkar strákar myndu skipta um félag, mér finnst að andinn sem er hérna í dag sé einstakur."
Athugasemdir