Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 04. ágúst 2015 14:23
Elvar Geir Magnússon
Mario Brlecic í ÍBV (Staðfest)
Úr leik hjá ÍBV.
Úr leik hjá ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net
ÍBV hefur fengið króatíska miðjumanninn Mario Brlecic til liðs við sig.

Brlecic er 26 ára gamall en hann spilaði síðast með Concordia Chiajna í Rúmeníu.

Brlecic fékk leikheimild með ÍBV í dag en félagaskiptin voru send frá Vestamannaeyjum fyrir helgi.

Félagaskiptaglugginn lokaði á föstudag en þar sem að búið var að senda beiðni um félagaskipti frá Íslandi þá fær Brlecic leikhemild samkvæmt nýrri reglugerð KSÍ.

Brlecic getur því spilað með ÍBV gegn Fylki í Pepsi-deildinni annað kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner