Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 04. ágúst 2015 20:33
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin: Monaco valtaði yfir Young Boys
Getur mætt Manchester United
Mynd: Twitter
Monaco 4 - 0 Young Boys (7-1 samanlagt)
1-0 I. Cavaleiro ('54)
2-0 L. Kurzawa ('64)
3-0 A. Martial ('70)
4-0 El Shaarawy ('77)

Monaco er komið alla leið í umspilið fyrir riðlakeppni Meistaradeildarinnar eftir stórsigur á Svisslendingunum í Young Boys.

Stephan El Shaarawy kom inná á 74. mínútu leiksins og var búinn að skora fjórða og síðasta markið þremur mínútum síðar og vann Monaco viðureignirnar 7-1 samanlagt.

Manchester United er meðal þeirra liða sem Monaco getur mætt í umspilsleik um sæti í riðlakeppninni, en Monaco sló Arsenal út í 16-liða úrslitum á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner