Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 04. ágúst 2015 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Telegraph 
Telegraph: Louis van Gaal lofar Pedro lykilhlutverki
Pedro hefur verið í herbúðum Barcelona síðustu 11 ár og á 51 landsleik að baki fyrir Spán.
Pedro hefur verið í herbúðum Barcelona síðustu 11 ár og á 51 landsleik að baki fyrir Spán.
Mynd: Getty Images
The Telegraph greinir frá því að Louis van Gaal, stjóri Manchester United, er að kaupa Pedro, leikmann Barcelona, á 22 milljónir punda.

Van Gaal lofar Pedro lykilhlutverki í sóknarleik Rauðu djöflanna þar sem hann á að mynda þriggja manna sóknarlínu ásamt Wayne Rooney og Memphis Depay.

Van Gaal ætlar sér að nota nýtt leikkerfi á komandi tímabili þar sem hann er búinn að gefast upp á 3-5-2 kerfinu og ætlar frekar að nota 4-3-3.

Pedro er falur fyrir 22 milljónir punda vegna samningsákvæðis hjá Börsungum og vill yfirgefa Katalóníu því þar fær hann ekki lykilhlutverk meðan hann er í byrjunarliðsbaráttu við leikmenn á borð við Luis Suarez, Lionel Messi og Neymar.

Pedro hefur skorað í þriðja hverjum leik hjá Barcelona spilandi á kantinum og mun opinbert tilboð berast frá Man Utd um leið og sala Angel di Maria til PSG verður staðfest.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner