Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 04. september 2014 22:30
Grímur Már Þórólfsson
McCarthy: Ég valdi QPR framyfir Liverpool
Alex McCarthy
Alex McCarthy
Mynd: Getty Images
Alex McCarthy markvörður QPR segist hafa hafnað Liverpool.

McCarthy er 24 ára gamall markvörður og var keyptur til QPR á lokadegi félagsskiptagluggans frá Reading.

Hann segist hafa valið QPR framyfir Liverpool en taldi líklegra að fá að spila hjá QPR.

,,Auðvitað er Liverpool risastórt félag en ég vildi frekar fara til QPR. Líkurnar á að fá að spila hjá QPR eru meiri og ég verð að hugsa um sjálfan mig."

Alex McCarthy hefur verið enska landsliðshópnum að undanförnu en hefur þó ekki enn náð að spila fyrir landsliðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner