Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fös 04. september 2015 14:00
Arnar Geir Halldórsson
Adebayor skrópaði í landsleik
Adebayor er týndur
Adebayor er týndur
Mynd: Getty Images
Emmanuel Adebayor sá sér ekki fært að mæta til móts við landslið sitt í leik gegn Djibouti í undankeppni Afríkumótsins.

Adebayor er ekki á leikmannalista Tottenham í vetur, hvorki í ensku úrvalsdeildinni né Evrópudeildinni en hann neitaði að yfirgefa félagið í sumar.

Þrátt fyrir að hafa ekkert að gera hjá félagsliði sínu virðist vera sem kappinn hafi ekki haft tíma til að mæta í landsliðsverkefni.

„Hann gaf okkur ekki neina ástæðu fyrir fjarveru. Hann var valinn í hópinn en hann er ekki hérna", segir í tilkynningu frá knattspyrnusambandi Tógó.

Leikurinn stendur yfir þegar þessi frétt er skrifuð og er staðan 2-0 fyrir Tógó.
Athugasemdir
banner