Elías Már Ómarsson, leikmaður Valerenga og íslenska U21 landsliðsins, er spenntur fyrir komandi leik gegn stórliði Frakklands í undankeppni EM 2017.
Frakkar mæta til leiks á Kópavogsvöll klukkan 14:00 á morgun og telur Elías að íslenska liðið eigi fína möguleika.
Frakkar mæta til leiks á Kópavogsvöll klukkan 14:00 á morgun og telur Elías að íslenska liðið eigi fína möguleika.
„Við erum spenntir fyrir leiknum. Frakkar eru með sterkt lið en við erum vel undirbúnir fyrir þennan leik. Þeir spila margir hverjir í stórum liðum en við erum með virkilega gott lið þannig ég held við munum ná góðum leik. Við unnum fyrsta leikinn 3-0 á móti sterku liði þannig við vitum alveg hvað við getum og förum með sama hugarfar í þennan leik," sagði Elías Már við Fótbolta.net.
Elías Már mætti stórliði Real Madrid í æfingaleik fyrr í sumar þegar Spánverjarnir heimsóttu Valerenga til Noregs. Hann viðurkennir að það hafi verið mögnuð upplifun.
„Það var alveg geðveik upplifun. Það var skrítið að labba inn á völlinn hliðina á þessum stóru nöfnum, það var góð upplifun að spila á móti svona stóru liði. Ég lenti nokkrum sinnum á móti Marcelo og Bale og Varane og öllum þeim, þetta var skemmtilegt," sagði Elías Már.
Athugasemdir