Robbie Fowler hefur aldrei verið hrifinn af Man Utd og hann gaf ekkert eftir þegar goðsagnalið Liverpool mætti goðsagnaliði Man Utd í gær.
Leikurinn fór fram í Stokkhólmi í Svíþjóð og var leikinn í góðgerðarskyni.
Mörg stór nöfn tóku þátt í leiknum og ber helst að nefna úr liði Liverpool áðurnefndan Fowler, Ian Rush, Patrick Berger og Jerzy Dudek.
Í liði Man Utd mátti meðal annars finna Bryan Robson, Denis Irwin og Ronny Johnsen.
Man Utd vann leikinn 4-2 þrátt fyrir að Vladimir Smicer hafi komið Liverpool yfir.
Karel Poborsky jafnaði fljótt metin fyrir Man Utd og mörk frá Dwight Yorke, Bojan Djordjic og Jesper Blomqvist komu Man Utd í góða stöðu.
David Thompson klóraði svo í bakkann fyrir Liverpool undir lokin.
Fowler var ekki sáttur með stöðu mála og lét Djordjic aðeins finna fyrir því eins og sjá má hér fyrir neðan.
Fowler bar fyrirliðaband Liverpool í leiknum og fékk að halda leik áfram þrátt fyrir að brotið hefði sennilega þýtt rautt spjald í alvöru leik.
Fowler up to his usual antics. pic.twitter.com/Qd6g1M5kO9
— LFC Dale... (@dale46122363) September 3, 2015
Athugasemdir