Þrjár umferðir eru búnar af þýsku úrvalsdeildinni þar sem Borussia Dortmund og Bayern Munchen hafa bæði fullt hús stiga.
Deildin heldur úti öflugri síðu á Youtube. Þar hefur verið tekið saman í eitt myndband flottustu tilþrif deildarinnar í ágústmánuði.
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
Þar má meðal annars sjá stórbrotin tilþrif Douglas Costa, sem gekk í raðir Bayern í sumar frá Shakhtar Donetsk. Á toppnum trónir hinsvegar Kevin Volland, leikmaður Hoffenheim.
Sjón er sögu ríkari.
Athugasemdir