Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fös 04. september 2015 16:38
Alexander Freyr Tamimi
Oliver Sigurjóns: Frakkar eru yfirleitt hrokafullir
Oliver Sigurjónsson í leiknum gegn Makedóníu fyrr á árinu.
Oliver Sigurjónsson í leiknum gegn Makedóníu fyrr á árinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska U21 landsliðið mætir Frakklandi í stórleik á Kópavogsvelli á morgun í undankeppni EM 2017.

Franska liðið er fullt af stórum nöfnum á borð við Aymeric Laporte hjá Athletic Bilbao og Jordan Amavi hjá Aston Villa. Oliver Sigurjónsson, miðjumaður Breiðabliks og U21 landsliðs Íslands, er þó hvergi banginn.

„Þetta er stór leikur og gaman að fá Frakkana hingað til landsins. Okkur hlakkar gífurlega til að fá þá á Kópavogsvöll, minn heimavöll, og það verður bara sótt til sigurs," sagði Oliver við Fótbolta.net.

„Auðvitað er alltaf skemmtilegt að fá að keppa á móti svona góðum leikmönnum sem eru að spila í stórum liðum. Þetta er skemmtilegt fyrir okkur að geta "matchað" við þá og séð hversu góðir við erum. Eins og þu sérð á leiknum í gær, það er verið að spila á móti Robben og Sneijder og fleiri stórstjörnum, ef liðsheildin og grimmdin og baráttan er til staðar, þá vinnum við þetta lið."

„Við höfum spilað á móti þeim tvisvar áður og gert 2-2 jafntefli í bæði skiptin. Við erum vel stemmdir. Við kláruðum Makedóníu 3-0 síðast, Frakkar eru yfirleitt hrokafullir og vanmeta oft minni lið og það er bara betra fyrir okkur ef þeir vanmeta okkur."


Viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner