banner
   fös 04. september 2015 18:00
Arnar Geir Halldórsson
Pedro: Valdes talaði vel um Man Utd
Mynd: Getty Images
Spænski sóknarmaðurinn Pedro gekk til liðs við Chelsea í sumar frá Barcelona.

Pedro virtist um tíma vera á leiðinni til Man Utd en á endanum ákvað hann að velja Lundúnarliðið.

Orðrómar voru á kreiki um að ástæða þess að hann hafi hafnað Man Utd væri meðferð Van Gaal á Victor Valdes, fyrrum liðsfélaga Pedro hjá Barcelona.

„Það er rétt að mér líkar ekki meðferðin á Victor. Mér finnst hún ekki sanngjörn en það var ekki ástæðan fyrir ákvörðuninni minni. Chelsea sýndi meiri áhuga og hlutirnir gengu hraðar fyrir sig".

„Ég talaði mikið við Victor. Hann talaði mjög vel um Man Utd og sagði að stuðningsmennirnir væru frábærir. Eina vandamálið væri ósætti hans við þjálfarann".

„En hann sagði mér alls ekki að hafna Man Utd. Hann talaði mjög vel um félagið. Þetta er frábært félag en ég er sannfærður um að ég hafi valið rétt að fara til Chelsea".

„Ég átti gott spjall við Jose Mourinho og hann sagði margt sem heillaði mig. Það og möguleikinn á að búa í London var það sem sannfærði mig um að fara til Chelsea", sagði Pedro


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner