Eftir tæpan klukkutíma hefst stórleikur Arsenal og Man Utd á Emirates leikvangnum í London.
Byrjunarliðin voru að berast og er fátt sem kemur á óvænt í uppstillingum liðanna.
Morgan Schneiderlin sest á bekkinn hjá Man Utd þar sem Michael Carrick og Bastian Schweinsteiger skipa miðjuna.
Hjá Arsenal heldur Wenger áfram að treysta á Theo Walcott sem fremsta mann á meðan Oliver Giroud er á bekknum.
Man Utd vonast til að endurheimta toppsætið en til þess að það gerist þarf liðið sigur. Arsenal getur hinsvegar jafnað Man Utd að stigum með sigri í dag.
Byrjunarlið Arsenal:Cech, Bellerin, Mertesacker, Gabriel, Monreal, Coquelin, Cazorla, Ramsey, Özil, Sanchez, Walcott.
Byrjunarlið Man Utd: De Gea, Young, Smalling, Blind, Darmian, Carrick, Schweinsteiger, Mata, Rooney, Memphis, Martial
Athugasemdir