Everton fær erkifjendur sína í Liverpool í heimsókn á Goodison Park í fyrsta leik dagsins í enska boltanum.
Einu stigi munar á liðunum fyrir leikinn, Everton er í 7.sæti með tólf stig en Liverpool hefur ellefu stig í 10.sæti.
Meiðslalisti beggja liða er langur og meðal leikmanna sem eru frá vegna meiðsla má nefna John Stones, Leighton Baines, Christian Benteke og Jordan Henderson.
Brendan Rodgers stillir upp sama liði og lagði Aston Villa um síðustu helgi en Liverpool hvíldi sína helstu lykilmenn í jafnteflinu gegn Sion í Evrópudeildinni á fimmtudag. Martinez stillir sömuleiðis upp sama byrjunarliði og í sigurleiknum gegn WBA síðastliðinn mánudag.
Byrjunarlið Everton:Howard, Galloway, Funes Mori, Jagielka (c), Browning, Barry, McCarthy, Naismith, Barkley, Deulofeu, Lukaku.
Byrjunarlið Liverpool:Mignolet, Skrtel, Sakho, Can, Clyne, Moreno, Lucas, Milner, Coutinho, Ings, Sturridge
Athugasemdir