Ufa 1-1 Krasnodar
1-0 Semen Fomin (´49)
1-1 Pavel Mamayev (´51)
Rautt spjald:Emmanuel Frimpong, Ufa (´84)
1-0 Semen Fomin (´49)
1-1 Pavel Mamayev (´51)
Rautt spjald:Emmanuel Frimpong, Ufa (´84)
Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn í vörninni hjá Krasnodar þegar liðið heimsótti Ufa í rússnesku úrvalsdeildinni í dag.
Semen Fomin kom heimamönnum yfir í upphafi síðari hálfleiks en tveim mínútum síðar jafnaði Pavel Mamayev metin eftir sendingu Ragnars.
Fyrrum leikmaður Arsenal, Emmanuel Frimpong, lét reka sig af velli fimm mínútum fyrir leikslok en Ragnar og félagar náðu ekki að nýta sér liðsmuninn og endaði leikurinn með jafntefli.
Krasnodar er í 9.sæti deildarinnar með fjórtán stig eftir ellefu leiki.
Athugasemdir